Félagi Fasteignasala, Hagsmunasamtökum heimilanna, Húseigendafélaginu, Húsnæðissamvinnufélaginu Búseta á Norðurlandi og talsmanni neytenda:
Aðilar lýsa ánægju sinni
- með áform nýrrar ríkisstjórnar um tímabundna löggjöf sem fresti fullnustugerðum gagnvart heimilum í landinu og
- með væntingar um löggjöf um greiðsluaðlögun til þess að leysa á sértækan hátt vanda þeirra lántakenda sem þegar hafa lent í verulegum erfiðleikum.1
Í von um skjóta úrlausn með framangreindum fyrstu skrefum senda þessir aðilar frá sér svohljóðandi:
Ákall til stjórnvalda um almennar aðgerðir
til lausnar efnahagsvanda heimilanna
Næstu skref 2
Til að koma í veg fyrir að fjöldi lántakenda lendi í þroti og jafnframt stuðla að því að fasteignamarkaður fari aftur af stað þarf að auki að beita almennum aðgerðum í eitt skipti. Til þarf að koma veruleg og almenn niðurfærsla höfuðstóla íbúðarveðlána vegna verulegs og óvænts gengishruns íslensku krónunnar og þarafleiðandi hækkunar gengistryggðra og verðtryggðra lána í kjölfar verðbólgu undanfarna 18 mánuði.
Varanleg lausn3
Að því búnu þurfa stjórnvöld að leggja drög að nýrri löggjöf um íbúðarveðlán þar sem gætt verði jafnræðis milli lántakenda og fjármagnseigenda í stað þeirrar ójöfnu stöðu sem í dag er við lýði þar sem áhætta af þróun gengis og óvissa um markaðsverð er lögð að fullu á lántakendur. Framtíðarlöggjöf þarf að fela í sér mótvægi gegn óeðlilegum verðsveiflum fasteigna. Á það jafnt við um lögvarið kerfi verðtryggðra lána og óvisst og ólögbundið umhverfi gengistryggðra lána.
Nánari upplýsingar gefa:
Félag Fasteignasala
Grétar Jónasson framkvæmdarstjóri, GSM 848 85 55
Hagsmunasamtök Heimilanna
Ásta Rut Jónasdóttir formaður, GSM 840 23 22
Húseigendafélagið
Sigurður Helgi Guðjónsson formaður, GSM 898 45 90
Húsnæðissamvinnufélagið Búseti á Norðurlandi
Benedikt Sigurðarson framkvæmdarstjóri, GSM 869 66 80
Talsmaður neytenda
Gísli Tryggvason, GSM 897 33 14
1 Lýst er von um að þessar bráðaaðgerðir og sértæku lausnir komi til framkvæmda á næstu dögum eins og ný ríkisstjórn hefur gefið væntingar um. Merkjanleg er víðtæk sátt um þessi áform og því gert ráð fyrir að ekki þurfi að koma langt og víðtækt samráð um þau.
2 Þess er vænst að slíkar aðgerðir komi til framkvæmda á næstu vikum. Í þessu tilviki þarf að viðhafa víðtækt samráð við sem flesta hagsmunaaðila á sem skemmstum tíma.
3 Þessi lausn þarf að líta dagsins ljós í formi langtímalöggjafar um íbúðarveðlán á næstu mánuðum. Um þetta þarf að hafa ítarlegt og víðtækt samráð við alla hagsmunaaðila.







