Áskorun til verkalýðshreyfingarinnar

  • Skoða sem PDF skjal

Hagsmunasamtök heimilanna skora á launþega landsins að rísa upp 1.maí og krefja forystu sína um afdráttarlausa hagsmunagæslu með að taka stöðu með launþegum og heimilunum í landinu gegn óviðunandi aðgerðum stjórnvalda og taumlausri óbilgirni fjármálafyrirtækja.

Hagsmunasamtök heimilanna skora á stjórnir samtaka launþega og verkalýðsfélöga landsins að taka afgerandi stöðu með heimilunum í landinu vegna gríðarlegs og hratt vaxandi fjárhagsvanda þeirra, sem er m.a. afleiðing ófyrirsjáanlegra, óeðlilegra og jafnvel ólöglegra hækkana á gengis- og verðtryggðum veðlánum heimilanna í aðdraganda og kjölfar efnahagshrunsins.

Tugþúsundir heimila eru með bága eða neikvæða eignastöðu samkvæmt  gögnum Seðlabanka Íslands frá síðustu áramótum.  Allt bendir til að efnahagur þeirra hafi versnað enn frekar frá áramótum og muni halda áfram á þeirri voðabraut, nema gripið verði inn í með almennri  leiðréttingu lána.  Um 25% heimila landsins eru með gengistryggð veðlán og verulegur hluti þeirra eru í tímabundinni frystingu.  Umsóknum Íbúðarlánasjóðs vegna greiðsluerfiðleika fjölgaði um 900% á milli áranna 2008-9.

Atvinnuleysi hefur sjaldan verið meira, aldrei hafa fleiri flust frá landinu, aldrei hafa fleiri flust frá höfuðborgarsvæðinu út á landsbyggðina, aldrei hafa jafn margar fjölskyldur leyst upp í skilnaðarátökum og aldrei hafa jafn mörg heimili á landinu verið í jafn alvarlegri skulda- og fjárhagsstöðu og nú.  Án víðtækrar leiðréttingar á lánum heimilanna á ástandið eingöngu eftir að versna og leiða til frekari sundrungar í samfélaginu.

Forsendur lána eru brostnar og þeim heimilum fjölgar hratt sem geta ekki staðið í skilum eða sjá hvorki tilgang né skynsemi í að greiða af lánum sem hækka stjórnlaust úr öllu valdi.   Nú hefur Héraðsdómur Reykjavíkur auk þess tvisvar dæmt gengistryggingu ólögmæta. Kaupmáttur rýrnar hratt, sem leiðir til samdráttar í einkaneyslu, sem eykur svo atvinnuleysið enn frekar.  Fasteignaverð er fallandi og bindur sífellt fleiri í bönd yfirveðsetningar.

Með samhentu átaki má rjúfa þennan vítahring og snúa þessari óheillaþróun við.  Aukið fjárhagslegt svigrúm heimilanna mun fljótt efla atvinnulífið, draga  úr atvinnuleysi og styrkja afkomu fjármálakerfis, lífeyrissjóða, sveitarfélaga og ríkissjóðs.  Slík efnahagsaðgerð slær á verðbólguþrýsting, mun vinna gegn verðfalli fasteigna og styrkja kaupmátt launþega.

Hagsmunasamtök heimilanna skora á verkalýðs- og launþegahreyfingar landsins að krefja stjórnvöld, fjármálafyrirtæki og lífeyrissjóði um tafalausa leiðréttingu á lánum heimilanna. 
Reykjavík, 30.apríl 2010
Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna