Ályktun aðalfundar Hagsmunasamtaka heimilanna 27. apríl 2010
Leiðrétting stökkbreyttra lána á ekki að vera ölmusa til að niðurlægja þá sem verst standa í þjóðfélaginu heldur almennur réttur lántakenda. Eins eiga þeir sem lenda í greiðsluþroti að hafa rétt til að byrja upp á nýtt og halda fjárræði sínu. Þetta hafa frá upphafi verið grundvallarkröfur Hagsmunasamtaka heimilanna og tíminn hefur staðfest réttmæti þeirra. Stjórnvöld hafa reynt margar leiðir til að komast fram hjá þessum kröfum en aðgerðir þeirra hafa gagnast fáum og vandinn eykst.
Þannig stefnir í mestu eigaupptöku almennings sem sögur fara af um leið og þessi sami almenningur er látinn borga skuldir auðmanna með sköttum. Nýleg skýrsla Seðlabankans gefur til kynna að nálægt helmingur fjölskyldna nái ekki endum saman. Tæp 30% fjölskyldna eiga ekki fyrir skuldum og þeim fer ört fjölgandi. Og meðal ungra fjölskyldna er hlutfallið tvöfalt hærra.
Æ fleirum verður þó ljóst að leiðrétting á lánum heimilanna er nauðsynleg efnahagsráðstöfun til að komast hjá samfélagslegri upplausn. Skilningur á þessu fer einnig vaxandi innan veggja Alþingis. Því standa vonir til að Hagsmunasamtökum heimilanna takist að knýja fram aðgerðir af hálfu stjórnvalda sem duga til varnar heimilunum. Þó mun árangurinn af starfi samtakanna fyrst og fremst byggjast á auknum stuðningi og virkri þátttöku fjöldans í starfi þeirra.
Hagsmunasamtök heimilanna hafa vaxandi hlutverki að gegna og því er brýnt að efla starf þeirra og skipulag og auka virkni félagsmanna til að fylgja eftir réttmætum kröfum þeirra.







