Sjórn Hagsumanasamtaka heimilanna vill koma eftirfarandi á framfæri vegna misskilnings sem virðist stundum koma upp í fjölmiðlum og víðar um skipulag og framkvæmd útifunda á Austurvelli, auk málflutnings og aðgerða frá Hagsmunasamtökum heimilanna (HH) og Nýju Íslandi (NÍ).
Varðandi samvinnu HH við NÍ er rétt að greina frá því að HH hefur átt í samvinnu við NÍ um 10 útifundi á Austurvelli um þau brýnu mál sem varða skuldavanda heimilanna á undanförnum vikum. Bæði NÍ og HH höfðu í hyggju að hefja fundi á Austurvelli á laugardögum og töldu báðir aðilar hyggilegast að hefja samvinnu um fundarhöldin frekar en að keppa um "yfirráð" vallarins. Engin tilraun var gerð til að stýra stefnumálum hvors annars en reynt að ná samhljómi í málflutningi eftir bestu getu innan þessara viðburða, til hagsbóta fyrir heimilin í landinu.
Að mati stjórnar HH hefur þetta tekist að mestu vel. Ávallt er litið svo á að ræðumenn hafi fullt tjáningarfrelsi og tali frá eigin hjarta, hvaðan sem þeir koma. Ræðumenn bera fulla ábyrgð sjálfir á eigin málflutningi. Þær kröfur sem HH og NÍ eiga sameiginlega, komast alltaf að en jafnframt hafa margir málsmetandi menn og konur fengið og fá tækifæri til að láta í sér heyra á fundunum.
Austurvöllur er Alþingi götunnar, þar er óviðeigandi að stunda ritskoðun af hálfu fundarhaldara. NÍ styður áherslu á leiðréttingarkröfur HH vegna íbúðalána. HH styður einnig áherslu á leiðréttingakröfur NÍ vegna bílalána almennings. HH hefur því stutt við friðsamleg mótmæli NÍ við lánafyrirtæki bílalána í hádeginu á þriðjudögum. HH tekur þó ekki efnislega afstöðu til skoðana talsmanna NÍ og aðgerða að öðru leiti. HH og NÍ eru aðskilin samtök og taka sjálfstæða afstöðu til málefna og aðgerða hvert um sig. Samvinnan lýtur að því að tryggja að Austurvöllur, Alþingi götunnar, sé virkur borgaralegur vetvangur til gagnrýnna beinna skoðanaskipta og aukinnar meðvitundar um stöðu og brýn úrlausnarefni heimilanna í landinu við þessar þrúgandi aðstæður.
HH styður einnig lyklafrumvarp Lilju Mósesdóttur, frumvarp Eyglóar Harðardóttur um tímasetta fyrningu gjaldþrota skulda og frumvarp Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um 4% hámark verðtryggingar húsnæðislána frá 1. jan. 2008. HH tekur einnig undir ýmis sjálfstæð málefni svo sem eins og ábendingar Sveins Óskars Sigurðssonar í formi skýrslu um Nauðungasölur á Íslandi.
HH styður ýmis samfélagsleg framlög sem stuðla að betri fjárhagslegri heilsu heimilanna og þar með efnahagslífsins í heild. Hugmyndirnar þurfa ekki að hafa komið frá Hagsmunasamtökum heimilanna til að vera verðugar. Aðalatriðið er að þær séu raunverulegar, réttlátar, sanngjarnar og verði að veruleika til hagsbóta fyrir heimilin í landinu sem allra fyrst.
Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna, 14.febrúar 2010.







