Nokkur einföld atriði sem SMG hunsar
Það var enginn að leggja til að ekki væri greitt fyrir eignanumda lánasamninga. Lánasamningarnir voru verðlagðir við sölu þeirra frá þrotabúum yfir í svokallaða nýju banka. Einnig má leggja til grundvallar það sem greitt var fyrir kröfurnar til upphaflegu kröfuhafanna. Hefur þú Sigurður velt því fyrir þér af hverju upplýsingar um þessa gjörninga þola ekki dagsins ljós. Það er af því að það á að fjármagna þessa nýju banka með þessum lánasamningum. Þeir eru skrifaðir upp í algjörlega óraunhæfar hæðir til þess að mynda myndarlegar eignir í bókunum. Þannig er ætla þeir að hefja nýja hrynu útlána og keyra kerfið upp í nýja þenslubólu. Menn þurfa að fara átta sig á því að það er ekki hægt að mjólka meiri peninga út en fólk er tilbúið að borga fyrir þessar eignir. Þúsundir eru nú þegar hættir að borga. Eignirnar fara hríðlækkandi og ná líklega ekki botninum fyrr en seint á næsta ári. Á meðan halda allir að sér höndum og þeir sem safna í sarpinn á meðan munu standa einna best að vígi. Það getur nefnilega ekki gengið upp að rukka fólk fyrir 2,3 hús þegar það fær bara eitt hús. Sama á við um bílana. Fólk er ekki tilbúið að borga Hömmer verð fyrir smábíla. Það segir sig sjálft að þetta getur ekki gengið upp. Það er enginn að ætlast til þess að þú sem skattgreiðandi gangir inn í þetta dæmi og bjargir einum né neinum. Það sem við erum að fara fram á að ríkið standi ekki með kröfuhöfum í að innheimta þessa vitleysu. Það sem við höfum bent á varðandi lán fólks hjá ÍLS er vel framkvæmanlegt ef menn hefður hugrekki til að takast á við fjármálaelítuna í þessu landi. Hún er harðákveðin í að fara braut sjálfseyðingar en það er sú braut sem er nú fetuð. Þeir ætla sér að hagnast á nýju bönkunum sem mest þeir mega með því að gefa sem minnst eftir af því afskriftasvigrúmi sem hefur verið úthlutað til þeirra. AGS hefur gefið skýr skilaboð um að heimilin eigi að fá leiðréttingar "up front" eins og þeir segja þ.e. innan 12 mánaða. Ef þetta er ekki gert sita menn uppi með tugi þúsunda manna í gjaldþrotameðferð. Svo einfallt er það. Ég held að SMG og fleiri séu ekki að átta sig á hlutföllunum sem um ræðir. Business as usual mun einfaldlega ekki ganga upp, ekki heldur með þeim plástrum sem greiðslujöfnun og greiðsluaðlögun eru. Þetta eru engar lausnir, vandanum og óvissuni er einfaldlega ýtt á undan sér. Það verður einfaldlega að leiðrétta gengistryggðu lánin en vegna gríðarlegra afskrifta hjá kröfuhöfum hefði verið hægt að leyfa þeim sem eru með verðtryggð lán að fá einhverjar leiðréttingar líka. Þessi leið var afskrifuð hjá fjármálaelítunni án þess að skoða það nokkurntíman. Við fengum mjög góðar tillögur og aðgerðarplan frá mönnum sem hafa unnið við íbúðalánasamninga hjá ÍLS árum saman. ÍLS var boðið og búið að yfirtaka öll innlend íbúðalán. Fjármálaelítan vildi þetta ekki af því að hún sér gróðavon í að halda þessu hjá nýju bönkunum. Þeir vilja milljarðana fyrir ekkert, það er kjarni málsins. Það er búið að leggja á afskriftareikningana tæpa 600 milljarða vegna heimilanna eingöngu. Það hefði ekki þurft helminginn af þessu til að uppfylla tillögur HH og þá hefði verið nóg eftir til að mæta afskriftum sem verða þrátt fyrir leiðréttingar. Sagan mun sína að HH hafði hárrétt fyrir sér í þessu. Menn eru nú að fara beinustu leið í botnfrosinn fasteignamarkað og gríðarlegt tap. Ég spái því að minnst einn af þessum nýju bönkum fari á hausinn ef ekki tveir. Þetta eru ekkert annað en æfingar í fáránleika er ég hræddur um, þetta er reiknisdæmi sem bara gengur ekki upp.







