Enn bullar þú ÓGarðarson

  • Skoða sem PDF skjal
Samkvæmt eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar er því aðeins heimlt að taka eignir eingarnámi að full endurgreiðsla komi til. Slík eignarmám eru því engan vegin samgærileg við það að verðfella eignir fólks beint með lagasetningu. Stjórnvöld hafa þetta því engan vegin í hendi sér og geta ekki gert það með lagasetningu. Slíkt munu þau einfalelga fá í hausinn í kjölfar málsókna lántaka á grunvelli eignarréttarákvæðis stjórnarskrárinnar ef Hæstiréttur samþykkir ekki rök stjórnvalda fyrir slíku. Það er rangat hjá þér að það muni lama efnahagslífið í langan tíma að fara ekki þá leið, sem HH krefjast. Þvert á móti mun það fjölga gjaldþrotum heimila, fjölga þeim heimilum, sem ekki eiga fyrir mat og bæði dýpka og lengja í kreppunni að fara þessa leið. Það gerist vegna þeirra gríðarlegu byrgða, sem slíkt mun leggja á skattgreiðendur. Þetta má sjá úttekt um á bloggi mínu hér: http://siggimaggi.blog.is/blog/siggimaggi/entry/995472/#comments Það að þeir, sem geti greitt sínar skuldir verði látnir gera það mun ekki henda neinum eignum í fangið á bönkunum. Í því liggur eini munurinn á kröfum HH og fyrirætlana stórnvalda. Stjórnvöld eru að búa svo um hnútana að þeir, sem ekki geta greitt sínar skuldir fái skuldir umfram greiðslugetu og verðmæti húseigna felldar niður. Eini munurinn á fyrirætlunum stjórnvalda og kröfum HH snýst því um að HH vilja að líka verði felldar niður skuldir hjá þeim, sem geta greitt sínar skuldir. Til að fara að þeim kröfum HH þarf að leggaj gríðarlegar byrgðar á alla skattgreiðendur og það til þess að færa fé til best settu heimilanna. Það mun eins og ég hef áður sagt fjölga gjaldþrotum heimila en ekki fækka þeim og því munu bankarnir fá fleiri heimili í fangið ef farið verður að kröfum HH en ef farin er leið stjórnvalda. Hvers vegna HH er að leggja fram kröfur, sem munu aðeins bæta stöðu best settu heimila landsins á kostnað þeirra verst settu er mér hulin ráðgáta. Kanski þú getir svarað því af hverju það er.