HAGSMUNASAMTÖK HEIMILANNA

Tökum stöðu með heimilunum

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Um samtökin Ályktanir - samþykktir Blekkingarnar eru þínar Sigurður

Blekkingarnar eru þínar Sigurður

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Það eru til margar leiðir til að láta afskriftir á lánasöfnum ganga til allra skuldara. Á sama hátt og sett voru neyðarlög um innistæður er hægt að setja neyðarlög um þetta. Eignarréttarákvæðið er ekki heilagara en svo að eignir eru teknar eignanámi oft á ári. Slíkt er gert á þágu almannaheilla og það á svo sannarlega við í þessu tilfelli. Stjórnvöld hafa þetta allt í hendi sér í raun. Það eina sem þurfti var vilji og kjarkur af þeirra hálfu. Það er bara þannig Sigurður að ef þetta verður ekki fært niður með góðu verður það tekið niður í illu. Það er verri kostur og það hefði verið mun betra ef menn hefðu séð að sér strax í byrjun ársins og hafið nauðsynlega vinnu við leiðréttingarnar. AGS hefur gefið út skýr skilaboð um að endurskipulagning skulda skuli gera "up front" eins og þeir segja og það á næstu 12 mánuðum. Hitt er kostur sem mun eingöngu lama efnahagslífið í langan tíma, enda er lifandi fasteignamarkaður grunnstoð innlends peningaflæðis. Fari menn ekki að blása lífi í fasteignamarkaðinn aftur verður skaðinn gríðarlegur, sérstaklega fyrir banka og fjármálastofnanir. Við erum að fara henda öllum þessum eignum í fangið á þeim, verði þeim að góðu. Þeir sem hættu að borga snemma og setja peningana til hliðar og reyna ekki að henda þeim í þá hýt sem stökkbreytt íbúðalán eru munu standa uppi með pálmann í höndunum í lokin. Þetta gerðist t.d. í Serbíu og fleiri stöðum. Þeir sem hættu að borga ruglið strax, hafa komið lang best út úr svona atburðum. Þetta er langt frá að vera í fyrsta sinn sem þetta gerist. Í USA hafa menn lært af reynslunni og þeir eru þessa dagana að gefa húseigendum gríðarlega afslætti af íbúðalánum. Það er bara skynsamlegt. Svo einfallt er það.
 

Gefðu þína umsögn

Þitt nafn:
Þitt nefang:
Efnislýsing:
Umsögn (nota má HTML tög hér):

Bankareikningur samtakanna

Sparisjóður Suður Þingeyinga - Laugum.

Samtökin óska eftir frjálsum framlögum til styrktar starfinu.

Reikningurinn er: 1110-26-5202
kt. 520209-2120

SAMSTAÐA

Hópmálsókn

Umsagnir