HAGSMUNASAMTÖK HEIMILANNA

Tökum stöðu með heimilunum

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Sjónhverfingar bankanna

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Höfuðstólslækkun samhliða vaxtahækkun hækkar heildargreiðslur.

Nú hafa fjórir bankar og stjórnvöld kynnt úrræði fyrir skuldsett heimili landsins. Fyrst reið Alþingi á vaðið og samþykkti lög um greiðslujöfnun verðtryggðra fasteignalána og sértæka skuldaaðlögun, þá gerðu fjármálafyrirtækin með sér samkomulag um greiðslujöfnun gengistryggðra lána og bílalána, samhliða því gerðu þau með sér samkomulag um fyrirkomulag sértækrar skuldaaðlögunar. Loks hafa fjórir bankar, þ.e. Íslandsbanki, Arion banki, Landsbankinn og Frjálsi fjárfestingabankinn kynnt „lausnir“ fyrir skuldara. Já, lausnirnar svo kölluðu eru fyrir skuldara en ekki viðskiptavini eða lántaka, og eru um að ræða ýmsar útfærslur á lækkun höfuðstóls lána gegn því að breytt sé um form á lánunum.

Hagsmunasamtök heimilanna hafa farið yfir þessar lausnir. Þær eiga það allar sameiginlegt, að greiðslubyrði lánanna lækkar til að byrja með. Sumar tryggja litla lækkun (Landsbankinn), en aðrar umtalsverðar (greiðslujöfnun). Gallinn á þeim flestum (öllum nema hjá Arion banka) er að heildargreiðslubyrðin verður meiri ef lántakar þiggja leiðréttinguna, en ef fólk reynir að þrauka. Er sú niðurstaða furðuleg í ljósi þess, að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn upplýsti í skýrslu sinni frá 3. nóvember sl. að töluvert svigrúm væri til staðar hjá öllum bönkunum að koma með verulega lækkun á hvoru tveggja greiðslu‐ og skuldabyrði heimilanna. Hjá stóru bönkunum þremur var þetta svigrúm metið upp á um 44% af verðmæti lánasafnanna. Raunar gekk Mark Flanagan, sendifulltrúi AGS, svo langt að segja á fundi með stjórnarmönnum HH, að sjóðurinn vildi sjá allt svigrúmið nýtt og nákvæmlega það. Hvorki krónu minna né meira.

Lausnir bankanna fela að mati Hagsmunasamtaka heimilanna í sér vissa blekkingu. Boðið er upp á mikla, tímabundna lækkun mánaðarlegra greiðslna. Byggir þetta að mestu á því að lækka verulega afborgun af höfuðstóli láns en sækja í staðinn meiri vexti til lántaka. Vissulega mun þessi tímabundna lækkun vara (miðað við vexti í dag) í 8 til 13 ár eftir bönkum (að undanteknum Landsbankanum sem varir í 31 mánuð), en eftir það byrja bankarnir að vinna upp hvern þann afslátt sem lántakar fá fyrstu árin.

Ef haft er í huga, að bönkunum er ætlað að skila til lántaka þeim afslætti, sem þeir fá frá kröfuhöfum sínum eða kröfuhöfum eldri birtingarmynda sinna, þá eru lausnir þeirra langt frá því að vera fullnægjandi né í takt við það sem þeim er í raun uppálagt. Hagsmunasamtök heimilanna hafa reiknað út að þarna muni tugum prósenta varðandi gengistryggð lán og minnst 10% þegar verðtryggð lán eiga í hlut. Án þess að farið verði nánar út í það hér, þá er það mat Hagsmunasamtaka heimilanna að ef stóru bankarnir þrír eiga að skila öllum afslættinum, sem þeir fengu frá gömlu bönkunum, þá geti þeir veitt 50% afslátt af höfuðstóli gengistryggðra lána og 20% afslátt af höfuðstóli verðtryggðra lána. Samhliða þessum breytingum yrði gengistryggðum lánum breytt í óverðtryggð lán með 3‐4% álag á vexti umfram óverðtryggða innlánsvexti, en vaxtakjör verðtryggðra lána yrðu óbreytt.

Hagsmunasamtök heimilanna fagna því að bankarnir viðurkenna þörf fyrir almenna lækkun höfuðstóls lána, hvort heldur gengistryggðra eða verðtryggðra. Samtökin hefðu viljað sjá bankana ganga mun lengra og að lántökum væri í auknum mæli gert kleift‐ að flytja lán sín á milli fjármálastofnana. Til þess að það geti gerst, þarf samtímis að afnema stimpilgjöld, þar sem stimpilgjöld eru einn stærsti þröskuldurinn á vegi þeirra sem vilja færa viðskipti sín á milli fjármálastofnana. Að standa frammi fyrir því að greiða 150 þús.kr. í stimpilgjald af hverjum 10 m.kr. sem viðkomandi skuldar, eingöngu vegna þess að viðkomandi þarf nýtt lán eða vill skuldbreyta láni, er oft stærri biti en fólk sættir sig við að kyngja.

Það er skoðun samtakanna, að svigrúm bankanna til að koma til móts við viðskiptavini sína sé mjög illa nýtt. Það voru fjármálastofnanir sem fóru fram úr sér í fjármálagjörningum sínum og ákvörðunum síðustu 2‐3 ár, sem leiddi til hruns bankakerfisins í október 2008. Eins ótrúlegt og það er þá ætlast þessar sömu stofnarnir til þess að almenningur borgi brúsann. Að mati Hagsmunasamtaka heimilanna er það ófyrirleitni svo ekki sé tekið sterkar til orða. Samtökin krefjast því, að fjármálastofnanir bjóði viðskiptavinum sínum alvöru lausnir, sem bera með sér að þessi sömu fyrirtæki ætli sér að axla sína ábyrgð á hruninu.

Hagsmunasamtök heimilanna hvetja fjármálastofnanir og stjórnvöld til að stuðla að sátt í samfélaginu. Samtökin telja að leiðrétting á höfuðstóli lána heimilanna, í samræmi við tillögur samtakanna, sé besta leiðin til að ná þeirri sátt. Samtökin hvetja því fjármálafyrirtæki til að bjóða strax upp á úrræði í samræmi við kröfur samtakanna. Jafnframt hvetja samtökin Alþingi til að samþykkja án tafar lög um 4% þak á árlegar verðbætur og lög um að veð skuli duga fyrir veðandlagi, svo kallað lyklafrumvarp.

Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna

Sjá nánari greinagerð Hagsmunasamtaka heimilanna hér.

 
Umsagnir (3)
3 Fimmtudagur, 04 Febrúar 2010 21:29
Lilja
Og hvað með lífeyrissjóðina líka, það er engar lausnir að fá þar nema greiðslujöfnun ef lánið fittar inn í rétta rammannn....
2 Miðvikudagur, 03 Febrúar 2010 11:21
Marta Ruth
Það er fagnaðarefni að bankarnir viðurkenna þörf fyrir lækkun höfuðstóls lána...
En hvað með Íbúðalánasjóð ??
Stór hluti þjóðarinnar er með lán þar og svokölluð samsett lán Íbúðalánasj. plús viðbót frá bönkunum.

Íbúðalánasjóður er ekki að boða neinar lausnir /leiðréttingu á höfuðstól og þeir sem fengu samsett lán eru líka afgangs stærð hjá bönkunum......og fá ekki lausnir þar...
1 Sunnudagur, 10 Janúar 2010 22:15
Sigurður Þórarinsson
Þessi svokölluðu úrræði fyrir skuldsett heimili finnast mér líkjast mest fjárhagslegum fjöldaaftökum ,þar sem snaran er sett um hálsinn á fórnarlömbunum og síðan er slakinn tekinn af svo að viðkomandi stendur á tánum þangað til hann þreytist og fer niður á iljarnar geta þá böðlarnir sagt að viðkomandi hafið framið sjálfsvíg.Nýjasta útspil lánadrottna er að setja gorm á spottann og lengja þannig dauðastríðið.

Gefðu þína umsögn

Þitt nafn:
Þitt nefang:
Efnislýsing:
Umsögn (nota má HTML tög hér):

Bankareikningur samtakanna

Sparisjóður Suður Þingeyinga - Laugum.

Samtökin óska eftir frjálsum framlögum til styrktar starfinu.

Reikningurinn er: 1110-26-5202
kt. 520209-2120

SAMSTAÐA

Hópmálsókn