Enn eruð þið að blekkja fólk.

  • Skoða sem PDF skjal
Þið hjá HH eruð enn að blekkja fólk og láta það halda að stjórnvöld geti einfaldlega tekið ákvörðum um að lækka skuldir heimilanna. Vissulega gætu stjórnvöld gert það ef ríkissjóður ætti öll lánasöfnin en þannig er það ekki. Þessar eignir lánveitenda eru verndarðar af eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar og fram hjá því komast stjórnvöld ekki. Þið hafið á móti talað um eignarrétt lántaka og húsnæðiskaupenda. Staðreyndin er hins vegar sú að eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar verndar fólk ekki fyrir tapi vegna verðrýrnunar eigna á markaði nér fyrir því að samningar, sem fólk hefur gertt springi í andlitið á því. Það eru hins vegar til ákvæði í samningalögum varðandi forsendubrest, sem geta tekið á því máli. Það er hins vegar mál dómstóla en ekki Alþingis eða ríkisstjórnarinnar að meta hvort um slíkan forsendubrest er að ræða. Meðan ekki liggur fyrir Hæstaréttardómur um slíkan forsendubrest eru hendur stjórnvalda bundnar. Þið haldið því enn fram að hægt sé að nota varúðarniðurfærslur lánasafna gömlu bankanna til almennrar niðurfærslu skuda þannig að nýju bankarnir lendi ekki í kostnaði vegna þess. Þessi fullyrðing er bull. Þessar niðurfærslur miðast einungis við óhjákvæmilegar afskriftir undirmálslána. Ég hef sýnt fram á þetta með nokkrum bloggfærslum. Þær má sjá hér. http://siggimaggi.blog.is/blog/siggimaggi/entry/988918/#comments http://siggimaggi.blog.is/blog/siggimaggi/entry/988554/#comments http://siggimaggi.blog.is/blog/siggimaggi/entry/980384/#comments Hvernig væri að fara að ræða þessi mál út frá réttum forsendum þannig að hægt sé að viðhafa vitræna umræðu um kosti og galla þeirra leiða, sem mögulegar eru til að taka á skuldavanda heimilanna?