Frá Friðriki Ó Friðrikssyni formanni Hagsmunasamtaka heimilanna

  • Skoða sem PDF skjal

Kæru félagsmenn Hagsmunasamtaka heimilanna
Breyting hefur orðið á stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna vegna nýrrar atvinnu formanns.  Á stjórnarfundi Hagsmunasamtaka heimilanna 5.nóvember greindi Þórður B. Sigurðsson formaður stjórnar frá því að hann hefði tekið að sér nýja atvinnu, sem er aðstoðarmaður formanns Hreyfingarinnar.  Hagsmunasamtök heimilanna eru frjáls og óháð stjórnmalaflokkum.  Öll vinna stjórnarmanna er ólaunuð og því kann að koma upp sú staða við breytingar á atvinnu stjórnarmanna að hún samræmist ekki samþykktum samtakanna.  Í ljósi þessa vék Þórður úr stjórn samtakanna af eigin frumkvæði á fundinum í fullri sátt við stjórnarmenn.

Á fundinum var kosinn nýr formaður stjórnar, Friðrik Ó. Friðriksson gjaldkeri samtakanna.  Auk þess hefur Guðrún Dadda Ásmundardóttir tekið fast sæti í stjórn, sem fyrsti varamaður.  Breytingin tekur þegar gildi.

Við þetta tækifæri vill stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna þakka Þórði B. Sigurðssyni óeigingjarnt og gríðarlega mikið starf í þágu samtakanna og heimilanna í landinu og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.  Þórður er einn af upphafsmönnum samtakanna.  HH og heimilin eiga án efa eftir að njóta góðs af störfum Þórðar áfram, þó undir öðrum formerkjum verði.

Framundan eru miklir óvissutímar fyrir mörg heimili, sem munu þurfa að horfast í augu við þrengri kost og jafnvel neyðarúrræði stjórnvalda.  Á þeim 10 mánuðum sem Hagsmunasamtök heimilanna hafa starfað hefur skilningur á fjárhagsvanda og sjónarmiðum heimilanna aukist verulega.  Stjórn hefur byggt upp mikið traust innan stjórnkerfisins og bandamönnum fer ört fjölgandi um allt land.  Margir áhersluþættir HH eru byrjaðir að „gerjast“ innan stjórnkerfisins og munu án efa skila sér í umbótum, þó síðar verði.  En engu að síður er enn nokkuð í land með að kröfum samtakanna verði mætt:

  • leiðréttingu á höfuðstól gengis- og verðtryggðra lána heimilanna
  • að stöðva þróun frekari sjálfvirkra skuldahækkana heimilanna
  • að jafna ábyrgð milli lántakenda og lánveitenda
  • aðgerðir til að snúa við kerfisbundinni skuldsetningu heimilanna

Næstu vikur verður mikil umræða og kynningarfundir um kynnt úrræði stjórnvalda, þe. Greiðslujöfnunarleið, sértæka skuldaaðlögun og Greiðsluaðlögun, þar sem lántakar þurfa að meta hvað úrræðin þýða og hvort þau nýtist eða henti þeim.  Stjórn samtakanna telur kynnt úrræði skref í rétta átt til að bæta stöðu lántakenda og fagnar auknum heimildum fjármálafyrirtækja til að mæta breyttum forsendum viðskiptavina sinna.  Stjórn telur hins vegar úrræðin engan veginn ganga nógu langt, þar sem þau taka ekki á nokkurn hátt á ofangreindum atriðum, auk veigamikilla galla á sjálfum úrræðunum, sem auka kostnað lántaka.  Við hvetjum þig til að til að kynna þér málin vel áður en ákvörðun er tekin og fylgjast með tilkynningum um kynningarfundi á heimasíðu samtakanna.

Það er afar mikilvægt að félagsmenn taki sem virkastan þátt í umræðum um baráttumál samtakanna bæði í máli og með skrifum.  Við hvetjum ykkur líka til að deila reynslu ykkar á heimasíðu samtakanna.  Persónulegar frásagnir hleypa lífi í allar þær tölur og hagstærðir sem við erum að slást við.  Þessi barátta snýst um lífsskilyrði heimilanna til skemmri og lengri tíma.

Fjöldi skráðra félagsmanna skiptir líka máli, bæði í umræðu og einnig í fjárveitingum til rekstrar.  Við hvetjum því alla félagsmenn til að taka virkan þátt í öflun nýrra félagsmanna.  Markmið stjórnar er að félagatalið sýni 10.000 skráða félagsmenn um komandi áramót.  Til að svo megi verða þarf hver fálagsmaður að afla þriggja nýrra félagsmanna.  Hver nýr félagsmaður skiptir miklu máli.

Það er sannfæring stjórnar að næstu 6 mánuði ráðist að miklu leiti hvort okkur takist að koma inn mikilvægum breytingum á aðgerðum til varnar heimilunum, sem geta leitt til sátta í samfélaginu.  Stjórn mun því leggja sig alla fram, en til að svo megi verða er afar brýnt að sem flestir félagsmenn taki einnig virkan þátt í starfi og málflutningi samtakanna á sem flestum sviðum.

Ný stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna :

Friðrik Ó. Friðriksson formaður
Vésteinn Gauti Hauksson varaformaður
Marinó G. Njálsson ritari
Arney Einarsdóttir gjaldkeri
Ólafur Garðarsson meðstjórnandi
Þorvaldur Þorvaldsson meðstjórnandi
Guðrún Dadda Ásmundardóttir meðstjórnandi
Varastjórn :
Axel P. Axelsson
Vilhjálmur Árnason
Haraldur Haraldsson
Hólmsteinn Brekkan
Andrea J. Ólafsdóttir
Margrét Ákadóttir
Með baráttukveðju og í von um jákvæð og virk viðbrögð,

Friðrik Ó. Friðriksson formaður stjórnar
Reykjavík, 6.11.2009