Í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) í tengslum við fyrstu endurskoðun efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda og AGS koma m.a. fram upplýsingar um mat á virði þeirra lánasafna sem heimilin eru ábyrg fyrir.
Samkvæmt greiningu Hagsmunasamtaka heimilanna á ofangreindum upplýsingum er raunvirði umræddra lánasafna metið á 80% hjá Íbúðalánasjóði, á hálfvirði hjá sparisjóðum og öðrum lánafyrirtækjum, 56% hjá Íslandsbanka, 55% hjá Nýja Kaupþingi og 53% hjá Nýja Landsbankanum. Að meðaltali gerir þetta 65%.
Út frá þessum upplýsingum draga samtökin þá ályktun að AGS telji mun meiri þörf fyrir niðurfærslu skulda heimilanna en áður hefur komið fram. Það mætti jafnvel halda því fram að samkvæmt ofangreindum upplýsingum þurfi að færa skuldir heimilanna niður um 35% að meðaltali til að jafnvægi náist.
Af þessu tilefni vilja Hagsmunasamtök heimilanna ítreka kröfur sínar um almennar leiðréttingar á höfuðstóli lána. Samtökin hafa lagt það til að gengistryggðum lánum verði breytt í verðtryggð krónulán frá lántökudegi og samhliða verði verðbótaþáttur verðtryggðra lána takmarkaður við 4% á ári frá 1. janúar 2008.
Samkvæmt útreikningum samtakanna rúmast slíkar leiðréttingar vel innan þeirra 35% marka sem upplýsingar frá AGS segja til um auk þess að gera ráð fyrir öðrum óhjákvæmilegum afskriftum umfram kröfur samtakanna. Þar sem verulegar afskriftir á lánasöfnunum hafa nú þegar átt sér stað við flutning þeirra milli gömlu og nýju bankanna myndi sá kostnaður sem til fellur við leiðréttinguna ekki falla á ríkissjóð, líkt og segir í skýrslu AGS:
"But with loans already marked down on banks’ books the incidence of the restructuring would not fall on the government". http://sedlabanki.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=7376 bls. 22
Í þessu samhengi vilja Hagsmunasamtök heimilanna vekja athygli á erindi Jóhanns G. Jóhannssonar sem ber nafnið: Almenn afskrift íbúðalána, tillaga að lausn. Erindið var flutt á opnum borgarafundi samtakanna í Iðnó mánudaginn 2. nóvember 2009 og felur í sér tæknilega útfærslu á því hvernig leiðrétting á borð við þá sem Hagsmunasamtök heimilanna hafa talað fyrir sé framkvæmanleg.
Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna
3.11.2009







