Fyrsta greiðsluverkfalli á vegum Hagsmunasamtaka heimilanna er nú lokið. Samtökin þakka öllum þeim fjölda sem tekið hefur þátt í verkfallinu eða stutt það á annan hátt.Verkfallið hefur fengið góðar undirtektir hjá almenningi en valdið verulegum titringi í bankakerfinu og hjá ríkisvaldinu.
Þann 1. nóvember n.k. lýkur þeim fresti sem veittur hefur verið varðandi nauðungarsölu íbúða. Hagsmunasamtök heimilanna krefjast þess að fresturinn verði framlengdur um 6 mánuði þannig að reynslan af aðgerðum ríkisstjórnarinnar komi í ljós áður. Það er mikið ábyrgðarleysi að selja eignir ofan af fjölda fólks áður en reynir á hvort ná má sátt í samfélaginu um viðunandi aðgerðir til varnar heimilunum.
Til að fylgja eftir þessari kröfu og ræða um boðun nýs greiðsluverkfalls boða Hagsmunasamtök heimilanna til opins fundar á næstunni.
15. október 2009
Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna







