Aðgerðir ríkisstjórnarinnar

  • Skoða sem PDF skjal
Þetta er algjörlega ótækt að höfuðstóll lána eigi áfram að vera stökkbreytt eftir hrunið. Eru HH samtökin búin að senda fjölmiðlum þessa ályktun sem þið birtið hér? Nú verðum við að fá fjölmiðla til að fjalla ítarlega um þetta mál. Fullt af fólki virðist halda að aðgerðir þær sem Félagsmálaráðherra kynnti væru raunverulegar aðgerðir til hjálpar. En eins og þið bendið á, þá eru þetta lymskulegar aðgerðir til að blekkja fólk. Og engin leiðrétting fyrr en eftir áratugi í lok lánstímans. Ég vil þakka ykkur stjórn HH fyrir mikið og óeigingjarnt starf í þágu heimila landsins. Ég er félagsmaður í HH og mér finnst nauðsynlegt að fjölga okkur félagsmönnum og að rödd okkar í þjóðfélaginu verði hávær.