Í dag lagði félagsmálaráðherra fram tillögur að aðgerðum sem samkvæmt upplýsingum á vef Stjórnarráðsins ,,fela í sér umtalsverða leiðréttingu á greiðslubyrði af lánum og nýjar leiðir til að laga skuldir fólks að eignastöðu og greiðslugetu".
Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna hefur lengi beðið eftir að fram komi tillögur frá stjórnvöldum og telja að framlagðar tillögur séu mikilvæg viðurkenning á baráttu þeirra fyrir hagsmunum heimilanna.
Stjórnin mun nú leggjast yfir tillögurnar og fylgiefni og fyrst að þeirri yfirlegu lokinni munu samtökin koma með ítarleg viðbrögð við innihaldi þeirra. Gera samtökin ráð fyrir að álit þeirra muni liggja fyrir fljótlega. En við fyrstu sýn telja samtökin að tillögurnar séu ófullnægjandi.
Ákvörðun um greiðsluverkfall stendur því óhögguð.







