Eru starfsmenn innheimtudeilda persónulega ábyrgir?

  • Skoða sem PDF skjal

Hagsmunasamtök heimilanna vilja beina þeim tilmælum til þeirra sem verða fyrir barðinu á innheimtuaðgerðum lánastofnana að halda til haga nöfnum þeirra starfmanna sem þeir eiga samskipti við. Hlutaðeigandi kunna að bera lagalega ábyrgð á þeim skaða sem innheimtuaðgerðir á ólögmætum lánaskilmálum kunna að valda. Upplýsingar um forsendubrest og réttaróvissu lánasamninga eru nú á allra vitorði og vart hægt að skýla sér á bak við fáfræði í þeim efnum.

Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna