Ekki í samráði við HH

  • Skoða sem PDF skjal

Í viðtali á bylgjunni í morgun (Ísland í bítið mánud. 28. sept. 2009), sagði Skúli Helgason að ríkisstjórnin hefði haft náið samráð við Hagsmunasamtök heimilanna. Það er einfaldlega rangt. Hagsmunasamtök heimilanna hafa ekki enn verið kölluð til við mótun hugmynda eða aðgerða. Hið rétta í þessu máli er að félagsmálaráðherra kallaði okkur á fund sunnudaginn 27. sept. 2009 til að kynna okkur þær hugmyndir sem stjórnvöld vinna nú að.

Greiðsluverkfallið hefst 1. október þar sem hvorki hefur verið gengið að kröfum HH né boðað til  samningaviðræðna um þær.