Yfirlýsing vegna tillagna ASÍ

  • Skoða sem PDF skjal

Tillögur ASÍ, sem birtar voru í dag, eru smáskammtalækningar og taka engan veginn á þeim forsendubresti sem hefur stökkbreytt skuldastöðu heimilanna.  Tillögurnar eru jákvæðar í þeim skilningi að þær bæta greiðsluaðlögunarferlið sem neyðarúrræði og styrkir réttarstöðu lántakenda.  Þessar tillögur hvorki forða því að þeim fjölgi verulega sem þurfa að nýta sér þetta úrræði, né heggur á þann efnahagshnút, sem blasir við heimilum þessa lands.  Heimilin þurfa og eiga rétt á víðtækari lausnum, sem felast í almennri leiðréttingu á stökkbreyttum höfuðstól veðlána.

Þegar það hefur fengist, fá aðilar vinnumarkaðarins og ríkisstjórnin almenning í lið með sér af fullum þrótti við endurreisn efnahagslífsins. Minnst fjórir hagfræðingar hafa lýst yfir samstöðu með Hagsmunasamtökum heimilanna hvað varðar þetta mál. Gunnar Tómasson, Haraldur Líndal, Ólafur Arnarson og Einar Árnason. Allt virtir hagfræðingar með tuga ára reynslu og djúpa innsýn í klukkuverk efnahagskerfa.

Nú hefur einnig Seðlabankastjóri tekið af allan vafa um að taka þurfi á gengistryggðum lánum fyrr en seinna svo hægt sé að lækka stýrivexti.

Tillögur ASÍ hafa því engin áhrif á boðun greiðsluverkfalls Hagsmunasamtaka heimilanna, sem hefjast af fullum þunga 1.okt. nk.

Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna