Ályktun Iðnó fundar 17. sept. 2009

  • Skoða sem PDF skjal

Ályktun opins borgarafundar Hagsmunasamtaka heimilanna í Iðnó 17. september 2009

Hagsmunasamtök heimilanna gera kröfur um almennar leiðréttingar lána vegna forsendubrests af völdum kreppunnar. Þessar kröfur fá vaxandi hljómgrunn meðal almennings og æ fleirum verður ljóst að slíkar leiðréttingar eru bæði réttlátar, sanngjarnar og hagkvæmar fyrir samfélagið í heild.

Það er dapurleg staðreynd að stjórnvöld skuli ekki svara þessum kröfum og ekki einu sinni ganga til viðræðna við samtökin. Ríkisstjórnin hefur boðað aðgerðapakka í októbermánuði en flest bendir til að þar verði enn einn pakkinn sem eru umbúðir einar.

Skuldugur almenningur á því þann kost einan að fylkja sér til þátttöku í greiðsluverkfalli til að fylgja eftir kröfum um sanngjarnar leiðréttingar. Hægt er að taka þátt í greiðsluverkfallinu með því að borga ekki af lánum frá 1. – 15. október, með því að taka innstæður sínar út úr ríkisbönkum og takmarka viðskipti sín og veltu í þeim eftir megni.