Endurnýjað ákall til stjórnvalda

  • Skoða sem PDF skjal
Endurnýjað ákall til stjórnvalda frá Hagsmunasamtökum heimilanna,  Húseigendafélaginu,  Félagi fasteignasala, Húsnæðissamvinnufélaginu Búseti á Norðurlandi, talsmanni neytenda og Lögmönnum Laugardal.   

Vísað er til ákalls frá 11. febrúar 2009 um almennar aðgerðir til lausnar á vanda heimila og lántakenda, sem því miður fengu ekki hljómgrunn hjá stjórnvöldum.  Nú eru ástand og horfur sýnu ískyggilegri. Greiðslubyrði verulegs hluta fjölskyldna er orðin eða er að verða allt of þung til að afkomuöryggi almennings sé tryggt.  Heimili landsins hafa orðið fyrir hamfaratjóni vegna gengisfalls krónunnar og verðtryggingar húsnæðislána og neytendalána. Til að koma í veg fyrir að fjöldi fólks lendi í þroti og greiðslugeta og greiðsluvilji hverfi og til að stuðla að því að fasteignaviðskipti verði heilbrigð og eðlileg verður að beita almennum aðgerðum í eitt skipti. Veruleg niðurfærsla eða leiðrétting höfuðstóls íbúðaveðlána er óhjákvæmileg. Jafna verður hamfaratjóninu með sanngjörnum hætti á hlutaðeigendur. Það næst aldrei sátt og friður með því að lántakendur beri einir obba tjónsins en lánveitendur séu með allt sitt á þurru. Slíkt færi í bága við gott viðskiptasiðferði og réttlætiskennd þorra fólks.

Þau úrræði sem til hefur verið gripið eru sum hver góðra gjalda verð en þau duga skammt og hjálpa of fáum og of lítið. Lækning verður að hæfa meininu og taka á því. Vandinn er að vaxa öllum almenningi langt yfir höfuð. Lög og lagaframkvæmd um greiðsluaðlögun hefur valdið vonbrigðum. Þá má átelja ekki hafi enn verið gripið til nauðsynlegra breytinga á lögum um gjaldþrot þannig að einstaklingar sem þvingaðir eru í gegnum það ferli geti átt afturkvæmt til fullrar þátttöku í samfélaginu að liðnum hæfilegum tíma.

Félag Fasteignasala, Hagsmunasamtök heimilanna, Húseigendafélagið, Húsnæðissamvinnufélagið Búseti á Norðurlandi, talsmaður neytenda og Lögmenn Laugardal vilja því enn á ný, og með enn meiri þunga, eggja stjórnvöld til almennra aðgerða í þágu lántakenda vísitölu- og gengistryggðra lána. Skuldsettar fjölskyldur eru að kikna undan greiðslubyrði sem þyngist með hverjum deginum og enda mun með fjöldaþroti og hruni heimila og allsherjar skipbroti nema gripið verði strax til róttækra aðgerða. Það er ljóst að réttarkerfið og fullnustukerfið mun ekki ráða við þá holskeflu skuldamála og fullnustugerða sem nálgast óðfluga. Langdýrast í stöðunni er að fljóta áfram sofandi að feigðarósi og gera ekkert. Neyðarástand kallar á neyðaraðgerðir. Nú verða verkin að tala og skilvirkar og skjótar aðgerðir að koma í stað óskýrra yfirlýsinga.

Með vísan til framanritaðs eru stjórnvöld hvött til brýnna ráðstafana og tafarlausra aðgerða til að verja heimili landsins og vilja aðstandendur þessa ákalls enn á ný bjóða fram krafta sína og gera allt sem í þeirra valdi stendur til að vinna með stjórnvöldum og öðrum hagsmunaðilum að lausnum sem þjóðarsátt getur orðið um.

Skorað er á Alþingi og ríkisstjórn að kalla til víðtæks samstarfs um breytta húsnæðislánalöggjöf.  Það er brýnt að leggja drög að nýrri löggjöf um íbúðaveðlán þar sem gætt verði jafnræðis milli lántakenda og lánveitenda í stað þeirrar ójöfnu stöðu sem í dag er við lýði þar sem áhætta af þróun verðbólgu og gengis og óvissa um markaðsverð er lögð að fullu á lántakendur. Framtíðarlöggjöf þarf að fela í sér mótvægi gegn óeðlilegum verðsveiflum fasteigna. Á það einkum við að því er varðar heimildir til verðtryggingar lána og mögulegar takmarkanir á heimildum veðhafa til að ganga að öðrum eignum og framtíðarfjármunum lántakenda.

Að lokum skal ítrekað að fjöldamargar hugmyndir hafa verið reifaðar og margvísleg sjónarmið eru uppi um mögulegar lausnir. Mikilvægt er að allar lausnir verði gaumgæfðar en umfram allt er það grundvallaratriði að fulltrúar lántakenda sjálfra hafi virka aðkomu að því að móta aðgerðir og fái vettvang til að verja hagsmuni sína gagnvart fjármálafyrirtækjum og fulltrúum kröfuhafanna.

Meðfylgjandi greinagerð