HAGSMUNASAMTÖK HEIMILANNA

Tökum stöðu með heimilunum

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Um samtökin Ályktanir - samþykktir Athugasemd vegna ummæla fjármálaráðherra

Athugasemd vegna ummæla fjármálaráðherra

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Vegna ummæla fjármálaráðherra á mbl.is þann 1. september 2009 um háskaleika þess að borga ekki, vill stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna koma á framfæri eftirfarandi athugasemd:

Félagar í Hagsmunasamtökum heimilanna, stjórnarmenn og hundruðir ef ekki þúsundir annarra Íslendinga hafa mánuðum saman gert tilraunir til að fá fjármálastofnanir að samningaborðinu og semja um íbúða- og bílalán. Bréf og tölvupóstar sem hafa verið send þessum aðilum skipta þúsundum.  Það er þó fáheyrt að þeim sé svarað efnislega, ef þeim er yfir höfuð svarað, hvað þá að boðið sé til samningaviðræðna.

Greiðsluverkfall er einmitt það neyðarúrræði sem ætlunin er að beita til þess að fá þessa aðila að samningaborðinu. Hér er fjármálaráðherra sjálfur með lítt dulbúnar hótanir í okkar garð og gefur í skyn að enginn vilji sé af okkar hálfu að semja þegar sannleikurinn er einmitt hið gagnstæða.  Viðskiptaráðherra hefur tekið í sama streng. Staðreyndin er hins vegar sú að fjármálakerfið hefur hafnað öllum sanngjörnum samningum og hefur auk þess einhliða tekið fjölda ákvarðana sem eru fullkomlega á skjön við hagsmuni heimilanna. Skilningsleysi ráðamanna á veruleika lántakenda og hroki í þeirra garð er með þvílíkum endemum að stjórn Hasmunasamtaka heimilanna sér sig knúna til að vekja athygli á blekkingum og ósannindum í málflutningi þeirra.

Ein af þeim ósannindum sem fjármálaráðherra og viðskiptaráðherra tyggja í fréttamenn æ ofan í æ er „að ekki séu til peningar til að bjarga öllum“. Þetta er ósvífinn útúrsnúningur því heimilin eru ekki að biðja um peninga, hvað þá að láta bjarga sér. Það eru heimilin sem borga þeim laun og þeim væri hollast að hafa það í huga þegar þeir tala. Það eru heimilin sem munu borga lánin og þau borga fyrir allt sem skiptir máli í samneyslunni. Frá heimilunum koma mennirnir sem fiska og frá heimilunum koma læknar og hjúkrunarfólk. Frá heimilunum er jörðin yrkt, heimilisfólkið tekur á móti ferðamönnunum og frá heimilunum kemur framtíðin.

ÞAÐ SEM HEIMILIN FARA NÚ FRAM Á ER AÐ HÖFÐUSTÓLAR LÁNA VERÐI LEIÐRÉTTIR. Það er enginn að biðja þessa herramenn að bjarga einum eða neinum, heimilin eru fyllilega sjálfbjarga. Enn og aftur, það eru heimilin sem borga og hafa aldrei ætlað sér annað. Ef það á hinsvegar að stefna hinu ofurþróaða innheimtukerfi fjármálastofnana og ríkisins á heimilin til þess að knýja þau til að taka á sig stökkbreytta höfuðstóla verður hér stórslys sem allir munu líða fyrir.

Tímabundið greiðsluverkfall frá 1. október til 15. október er aðvörun til ráðamanna. Þeir sem taka þátt í því eru að mótmæla því óréttlæti og siðleysi sem óbreytt innheimta stökkbreyttra höfuðstóla er. Við vitum að nýju bankarnir hafa 2.800 milljarða svigrúm til afskrifta og í tilfelli heimilanna, til leiðréttinga. Hvað þarf að gerast til að þessir menn fari að komast úr blekkingarleikjum og afneitun? Það er hollt til tilbreytingar að hlusta stundum á fólkið í landinu.

Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna
2. september 2009
 
Umsagnir (5)
5 Föstudagur, 04 September 2009 01:04
ElleE
Hin ofurþróuðu innheimtukerfi fjármálastofnana getum við bara kallað það sem þau eru: Hin glæpsamlegu og yfirgengilegu inntheimtukerfi. Það er verið að rukka fólk fyrir þýfi og þarf ekkert að fara neinum vægum orðum um það. Þýfi sem fjármálastofnanir hafa fengið að leggja ofan á höfuðstól skulda fólks á meðan það svaf á nóttinni og með öflugum stuðningi AGS og yfirvalda. Og við viljum bara að þýfinu verði skilað. Við krefjumst þess að þýfinu verði skilað með góðu eða illu. Og ef það verður ekki gert, þá með hjálp lögmanna og dómstóla, innlendum eða erlendum.
4 Fimmtudagur, 03 September 2009 10:53
DD
Af hverju er verið að miða við 15 daga verkfall þegar eindagi mjög margra lána eru 15. hvers mánaðar? Af hverju ekki að miða við fram yfir næstu mánaðarmót þannig að lánin fari pottþétt fram yfir eindaga og að tölurnar alveg örugglega birtist í vanskilaskýrslum bankanna?
3 Fimmtudagur, 03 September 2009 10:28
ÓGarðarsson
Allar upphæðir skipta máli varðandi þátttöku. Ef um einn af nýju ríkisbönkunum er að ræða má t.d. stofna reikning í sparisjóði eins og Sparisjóði Suður Þing. og tilkynna bankanum að viðskipti verði flutt. Þið getið líka sent bankanum skeyti og tilkynnt að þið viljið draga greiðsluna í 2 til 3 daga til að sýna samstöðu með greiðsluverkfallinu. Að láta vita hug ykkar er það sem er mikilvægast. Seinna koma tækifæri til að taka virkari þátt ef ráðamenn taka ekki sönsum í þessu máli.
2 Miðvikudagur, 02 September 2009 21:19
Margrét Ólafsd.
Við hjónin erum með verðtryggt húsnæðislán hjá Landsbankanum sem skuldfærist 15. hvers mánaðar af bankareikningi okkar. Ég vil gjarnan taka þátt í greiðsluverkfallinu en veit ekki hvernig. Við eigum engan sparnað sem við getum tekið út og ég get ekki sagt upp greiðslukorti. Hvaða aðrar hugmyndir hafið þið um hvernig ég get stutt greiðsluverkfallið?
1 Miðvikudagur, 02 September 2009 15:31
Theódór Norðkvist
Góð samantekt. Hótun fjármálaráðherra (Bretlands miðað við framgöngu hans í Icesave) endurspeglar þann ásetning að láta heimili landsins borga skuldir fjárglæframanna og fjármagna endurreisn spillts bankakerfis.

Gefðu þína umsögn

Þitt nafn:
Þitt nefang:
Efnislýsing:
Umsögn (nota má HTML tög hér):

Bankareikningur samtakanna

Sparisjóður Suður Þingeyinga - Laugum.

Samtökin óska eftir frjálsum framlögum til styrktar starfinu.

Reikningurinn er: 1110-26-5202
kt. 520209-2120

SAMSTAÐA

Hópmálsókn

Umsagnir, article: "Athugasemd vegna ummæla fjármálaráðherra"