Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna lýsir yfir stuðningi við störf Evu Joly í þágu réttarkerfis þjóðarinnar og þannig almennra hagsmuna. Í ljósi viðtala og yfirlýsinga frú Joly er það mat stjórnar HH að hún hafi notað áhrif sín til að halda rannsókn sérstaks saksóknara á réttri braut. Rannsóknin er ef að líkum lætur mikilvægasta aðgerð íslenska réttarkerfisins frá upphafi og mun hafa áhrif langt út fyrir landsteinana. Eva Joly nýtur óskoraðs trausts okkar.11.6.2009
Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna







