Erlend lán

  • Skoða sem PDF skjal
Við erum fjölskylda með 3 börn og keyptum stærra hús 2007 og borguðum 1/3 eða semsagt aleiguna í það og restin á erlendum lánum. Lánin eru auðvitað í dag miklu hærri en verðgildi húsins. Sérstaklega þegar horft er á það að fasteignaverð er hrunið. Við vitum að við erum búin að missa aleiguna. Maður getur reynt að kyngja því með tárin i augunum. En fyrir okkur að reyna að kyngja því að það eina sem okkur er boðið er púði á rassinn og það að þurfa að hafa hann límdan á okkur í 3-5ár áður við getum reynt að byggja okkur upp aftur, það er eins og draga á eftir sér fangelsis lóð. Við erum ekki glæpamenn og svona fátæklegar "lausnir" eru lítillækkandi. Við vitum öll hvað gerist fyrir menn sem eru króaðir út í horn. Þeir annað hvort veslast upp eða snappa. Þetta eru ekki heldur bara við. Í kringum okkur eru þrjár fjölskyldur sem stefna í algjört þrot og miklu miklu fleirri sem sjá bara svart framundan. Þetta fólk og við göngum um eins og jójó dag eftir dag. Nú er nóg komið, ég skora á þessar þúsundir eða tugþúsundir manna sem eru að horfast í augu við það að lán þeirra hafa hækkað meira en nokkur rök eru fyrir að taka höndum saman. Berjum fast að dyrum hjá ríkisstjórninni og ef það ekki dugar getum við látið þau finna fyrir eigin meðali....búsáhöld og skyr.