HAGSMUNASAMTÖK HEIMILANNA

Tökum stöðu með heimilunum

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Um samtökin Ályktanir - samþykktir Skorað á verkalýðshreyfinguna

Skorað á verkalýðshreyfinguna

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Hagsmunasamtök heimilanna og Húseigendafélagið

skora á

verkalýðshreyfinguna

___________________________

Ofangreind hagsmunasamtök, skora á launþegasamtök og verkalýðsfélög landsins að taka afgerandi stöðu með heimilunum í landinu vegna gríðarlegs og hratt vaxandi fjárhagsvanda þeirra, sem er m.a. afleiðing ófyrirsjáanlegra, óeðlilegra og jafnvel ólöglegra hækkana á gengis- og verðtryggðum veðlánum heimilanna í kjölfar efnahagshrunsins.

Um 42% heimila eru með bága eða neikvæða eiginfjárstöðu skv. gögnum Seðlabanka Íslands frá síðustu áramótum. Allt bendir til að efnahagur þeirra hafi versnað enn frekar frá áramótum og muni halda áfram á þeirri voðabraut, nema gripið verði inn í með almennri leiðréttingu lánanna. Um 25% heimila landsins eru með gengistryggð veðlán og um 90% þeirra eru í tímabundinni frystingu. Umsóknum Íbúðarlánasjóðs vegna greiðsluerfiðleika hefur fjölgað um 900% á milli ára.

Forsendur verð- og gengistryggðra lána eru brostnar og þeim heimilum fjölgar ískyggilega hratt sem geta ekki staðið í skilum eða sjá hvorki tilgang né skynsemi í að greiða af lánum sem hækka stjórnlaust úr öllu valdi . Kaupmáttur rýrnar óðum og atvinnuleysi er í sögulegum hæðum, sem leiðir til samdráttar í einkaneyslu, sem eykur svo atvinnuleysið enn frekar.

Með samhentu átaki má rjúfa þennan vítahring og snúa þessari óheillaþróun við. Aukið fjárhagslegt svigrúm heimilanna mun fljótt efla atvinnulífið, draga úr atvinnuleysi og styrkja afkomu fjármálakerfis, sveitarfélaga og ríkissjóðs.

Undirrituð samtök skora á launþegahreyfingar landsins að knýja á stjórnvöld og kalla eftir tafarlausum almennum leiðréttingum á gengis-og verðtryggðum lánum heimilanna. Í þessu samhengi er vert að benda á nýlega kynnta sáttartillögu talsmanns neytenda vegna sama vanda.

Skráðir félagar í ofangreindum samtökum eru samtals um 11.000.

________________________________________



Reykjavík, 30.apríl 2009


Virðingarfyllst,

f.h. Hagsmunasamtaka heimilanna f.h. Húseigendafélagsins

Þórður B. Sigurðsson formaður. Sigurður Helgi Guðjónsson formaður.

 
Umsagnir (6)
6 Þriðjudagur, 25 Ágúst 2009 10:28
Kjartan Sigurgeirsson
Mér leikur forvitni á að vita hver viðbrögð verkalýðshreyfingar hafa verið við þessari áskorun. Það virðist vera að verkalýðshreyfing hafi meiri áhuga á að vera talsmenn ónýtrar ríkisstjórnar, en að bera hönd fyrir höfuð umbjóðenda sinna. Ég hef ekki heyrt annað en að allt sé í góðu lagi í þeirra augum ef við komumst örugglega í ESB, annað skipti ekki máli.
5 Mánudagur, 04 Maí 2009 20:08
Inga
Það er það sem þarf!!!

Hreinlega auglýsi eftir ,,skjaldborg um heimilin!!!"
Ekki nægjanlegt að tala - þarf að framkvæma!!

Jóhanna - koma nú - setja ,,rass-mótorinn" í gang!!!!
4 Laugardagur, 02 Maí 2009 14:45
Berglind
Við erum fjölskylda með 3 börn og keyptum stærra hús 2007 og borguðum 1/3 eða semsagt aleiguna í það og restin á erlendum lánum. Lánin eru auðvitað í dag miklu hærri en verðgildi húsins. Sérstaklega þegar horft er á það að fasteignaverð er hrunið. Við vitum að við erum búin að missa aleiguna. Maður getur reynt að kyngja því með tárin i augunum. En fyrir okkur að reyna að kyngja því að það eina sem okkur er boðið er púði á rassinn og það að þurfa að hafa hann límdan á okkur í 3-5ár áður við getum reynt að byggja okkur upp aftur, það er eins og draga á eftir sér fangelsis lóð. Við erum ekki glæpamenn og svona fátæklegar "lausnir" eru lítillækkandi. Við vitum öll hvað gerist fyrir menn sem eru króaðir út í horn. Þeir annað hvort veslast upp eða snappa. Þetta eru ekki heldur bara við. Í kringum okkur eru þrjár fjölskyldur sem stefna í algjört þrot og miklu miklu fleirri sem sjá bara svart framundan. Þetta fólk og við göngum um eins og jójó dag eftir dag.

Nú er nóg komið, ég skora á þessar þúsundir eða tugþúsundir manna sem eru að horfast í augu við það að lán þeirra hafa hækkað meira en nokkur rök eru fyrir að taka höndum saman. Berjum fast að dyrum hjá ríkisstjórninni og ef það ekki dugar getum við látið þau finna fyrir eigin meðali....búsáhöld og skyr.
3 Laugardagur, 02 Maí 2009 09:04
Reynir Ragnarsson
Eg er 52 ara og buin að heyra eitt og annað um ævina,sem a að gera fyrir folkið ilandinu.maður lifnar allur við.þa kemur það,BARA EKKI FYRIR ÞIG.
2 Laugardagur, 02 Maí 2009 02:03
Ruth
Húsnæðislánin mín hafa hækkað um 10.000.000 á 4 árum vegna verðtryggingarinnnar.
Þetta er rán ! og ánauð!

Ætlast þeir virkilega til að við sættum okkur við alla þessa skuldaraukningu á sama tíma og verðlag hækkar á mat og nauðsinnum?
Og þúsundir hafa misst vinnuna ?

Það er ekkert vit í að borga af þessum lánum ,fjöldagjaldþrot og landsflótti virðist vera framtíðin
1 Föstudagur, 01 Maí 2009 23:59
Laufey A. Kristjánsdóttir
Við þurfum að sættast við hina þjóðina. Sparifjárs,lífeyrisþjóðina.

Gefðu þína umsögn

Þitt nafn:
Þitt nefang:
Efnislýsing:
Umsögn (nota má HTML tög hér):

Bankareikningur samtakanna

Sparisjóður Suður Þingeyinga - Laugum.

Samtökin óska eftir frjálsum framlögum til styrktar starfinu.

Reikningurinn er: 1110-26-5202
kt. 520209-2120

SAMSTAÐA

Hópmálsókn

Umsagnir, article: "Skorað á verkalýðshreyfinguna"