Tillögur frá Hagsmunasamtökum heimilanna.
Áherslur okkar eru tvíþættar:
- annars vegar aðgerðir til að auka á úrræði og von þeirra sem óhjákvæmilega lenda í sértækum úrræðum
- og hins vegar almennar fyrirbyggjandi aðgerðir til að fækka þeim sem þurfa á sértækum úrræðunum að halda.
Þær aðgerðir þurfa að höfða til sanngirni, réttlætis og jafnræðis. Horfa þarf til framtíðar, þannig að heimilin, atvinnulífið, fjármálakerfi og hið opinbera komist öll í gegnum þetta þrengingatímabil.
Aðgerðaleysi gagnvart verðbótaþætti veðlána skapar til skamms tíma söluvænlega bókfærða stöðu fjármálafyrirtækja gagnvart ríkissjóði, en mun leiða af sér hrun og gríðarleg vandamál heimila og atvinnulífs til lengri tíma, sem mun að lokum leiða til kerfishruns. Gengistryggðu veðlánin eru þó meira aðkallandi í augnablikinu. Taka verður á þessum lánaflokkum samhliða til að gæta jafnræðis.
Breytingar á skattkerfi hafa einnig komið til tals, en krefst meiri tíma til umræðna og útfærslu. Þar má þó benda á möguleika í vaxta- og húsaleigubótum, sérstaklega ef þær eru tengdar við skattkerfið og útfærðar að norskri fyrirmynd sem frádráttur á tekjuskatt.







