HAGSMUNASAMTÖK HEIMILANNA

Tökum stöðu með heimilunum

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Um samtökin Ályktanir - samþykktir
Ályktanir - samþykktir ofl.

Samvinnan um Austurvöll - alþingi götunnar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Sjórn Hagsumanasamtaka heimilanna vill koma eftirfarandi á framfæri vegna misskilnings sem virðist stundum koma upp í fjölmiðlum og víðar um skipulag og framkvæmd útifunda á Austurvelli, auk málflutnings og aðgerða frá Hagsmunasamtökum heimilanna (HH) og Nýju Íslandi (NÍ).

Varðandi samvinnu HH við NÍ er rétt að greina frá því að HH hefur átt í samvinnu við NÍ um 10 útifundi á Austurvelli um þau brýnu mál sem varða skuldavanda heimilanna á undanförnum vikum. Bæði NÍ og HH höfðu í hyggju að hefja fundi á Austurvelli á laugardögum og töldu báðir aðilar hyggilegast að hefja samvinnu um fundarhöldin frekar en að keppa um "yfirráð" vallarins. Engin tilraun var gerð til að stýra stefnumálum hvors annars en reynt að ná samhljómi í málflutningi eftir bestu getu innan þessara viðburða, til hagsbóta fyrir heimilin í landinu.

Lesa meira...
 

Yfirlýsing frá greiðsluverkfallsstjórn Hagsmunasamtaka heimilanna

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Merki HHÞúsundir heimila standa nú frammi fyrir því að geta ekki samtímis greitt af íbúðarlánum og brauðfætt fjölskyldu sína. Þeim fjölgar einnig sem ekki sjá glóru í því að borga af stökkbreyttum lánum sem eru hærri en verðmæti íbúðarinnar og vonlaust að greiða nokkurn tíma upp.

Lánasöfn heimilanna voru færð frá gömlu bönkunum til þeirra nýju með 40 - 60% afslætti. Þessir tæpu 600 milljarðar eiga að skila sér til lántakenda sem leiðrétting vegna forsendubrests en bankarnir ætla að stinga þeim í eigin vasa sem aukagróða.

Lesa meira...
 

Sjónhverfingar bankanna

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Höfuðstólslækkun samhliða vaxtahækkun hækkar heildargreiðslur.

Nú hafa fjórir bankar og stjórnvöld kynnt úrræði fyrir skuldsett heimili landsins. Fyrst reið Alþingi á vaðið og samþykkti lög um greiðslujöfnun verðtryggðra fasteignalána og sértæka skuldaaðlögun, þá gerðu fjármálafyrirtækin með sér samkomulag um greiðslujöfnun gengistryggðra lána og bílalána, samhliða því gerðu þau með sér samkomulag um fyrirkomulag sértækrar skuldaaðlögunar. Loks hafa fjórir bankar, þ.e. Íslandsbanki, Arion banki, Landsbankinn og Frjálsi fjárfestingabankinn kynnt „lausnir“ fyrir skuldara. Já, lausnirnar svo kölluðu eru fyrir skuldara en ekki viðskiptavini eða lántaka, og eru um að ræða ýmsar útfærslur á lækkun höfuðstóls lána gegn því að breytt sé um form á lánunum.

Lesa meira...
 

Ályktun frá Hagsmunasamtökum heimilanna

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Horfur fyrir heimilin eru grafalvarlegar nema stjórnvöld grípi til frekari aðgerða.

Í ljósi umfjöllunar um þrönga stöðu sífellt fleiri heimila landsins vilja Hagsmunasamtök heimilanna ítreka kröfur sínar um að stjórnvöld grípi tafarlaust til frekari almennra aðgerða fyrir skuldsett heimili landsins.  Setja verður þak á verðbótaþátt verðtryggðra lána og breytilega vexti.  Leiðrétta verður gríðarlegar höfuðstólshækkanir með almennum aðgerðum til að forða hér frekara tjóni og skapa sátt til enduruppbyggingar hagkerfisins.  Úrræðin verður að útfæra í samráði við fulltrúa neytenda og lántaka.

Lesa meira...
 

Ályktun HH í dómsmáli vegna SP-fjármögnunar gegn Óskari Sindra

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Hagsmunasamtök heimilanna lýsa yfir vonbrigðum með dóm Páls Þorsteinssonar dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur, í máli SP-fjármögnunar gegn Óskari Sindra Atlasyni. Augljós lögbrot SP-fjármögnunar við samningsgerð eru látin óátalin þ.e.a.s. fjármálaafurð SP-fjármögnunar, skuldabréf tilgreint í íslenskum krónum með gengistryggingu við erlenda gjaldmiðla. Slík verðbreytingaákvæði eru greinilega óleyfileg samkvæmt lögum 38/2001, en þar er tekið fram að eina verðbreytingaviðmiðið sem leyft skuli við innlenda lánasamning sé vísitala neysluverðs og hlutabréfavísitala. Dómari hengir úrskurð sinn á að lántaki hafi gert sér grein fyrir áhættu við gengistryggingu og að SP-fjármögnun eigi ekki sök á gengisbreytingum. Kröfu verjanda um að SP-fjármögnun skuli sanna að þeir hafi tekið erlent lán til grundvallar útlánum er alfarið hunsuð. Um réttarheimildir vísar stefnandi til meginreglu íslensks samninga- og kröfuréttar, að samninga beri að efna. Um vísan verjanda í ólögmæti gengisbindingar lánsins segir í niðurstöðum dómara:

Lesa meira...
 

Frumvörp sem við hvetjum félagsmenn að kynna sér og styðja

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
LAGAFRUMVÖRP SEM ÞÚ GETUR STUTT
Hvetjum þingmenn til að styðja þessi frumvörp, sendum þeim skeyti:

Hámarkshækkun verðtryggingar á ársgrundvelli verði 4%
http://www.althingi.is/altext/138/s/0012.html

Lög um að ekki verði gengið lengra í innheimtu veðlána en að leysa til sín veðsetta eign.
http://www.althingi.is/altext/138/s/0007.html

Tillaga til þingsályktunar um leiðréttingu höfuðstóla lána íslenskra heimila og rekstrarfyrirtækja.
http://www.althingi.is/altext/138/s/0004.html

Netföng þingmanna má finna hér:
http://www.heimilin.is/varnarthing/skrifadu-thingmonnum
 

Greinargerð um sértæka skuldaaðlögun

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal
Umsögn Hagsmunasamtaka heimilanna um samkomulag fjármálafyrirtækja um sértæka skuldaaðlögun

Inngangur

Á vef Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF) hefur verið birt tilvísun í samkomulag fjármálafyrirtækja um verklagsreglur um sértæka skuldaaðlögun (hér vísað á skjalið á vef félags- og tryggingamálaráðuneytisins), en það var undirritað 31. október sl. af fulltrúum fjölmargra fjármálafyrirtækja. Aðkoma lántaka eða Talsmanns neytenda er engin að skjalinu, að því að Hagsmunasamtök heimilanna (HH) best vita.

Skjalið er byggt á heimild í 2. gr. laga nr. 107/2009 um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishruns, en í greininni segir meðal annars:

„..Heimilt er eftirlitsskyldum aðilum á fjármálamarkaði að móta með samkomulagi sín á milli samræmdar verklagsreglur um skuldaaðlögun sem gildi tímabundið..“
Lesa meira...
 

Fréttatilkynning vegna hugmynda um skattkerfisbreytingar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Vegna umræðu á Alþingi og í fjölmiðlum um hugsanlegar skattkerfisbreytingar og umræðu um lögmæti gengistryggðra lána vilja Hagsmunasamtök heimilanna taka eftirfarandi fram:

Hagsmunasamtök heimilanna mótmælta harðlega öllum hugmyndum um að auka álögur á heimilin í landinu.  Heimilin eru þegar að kikna undan þeirri greiðslubyrði sem á þau hefur verið lögð með óréttmætri stökkbreytingu á höfuðstóli lána þeirra.  Kaupmáttur ráðstöfunartekna hefur á þessu ári rýrnað um hátt í 10% og mun sú þróun halda áfram á næsta ári.  Hækkun neysluskatta fer beint út í verðlagið og þaðan yfir í verðtryggð lán heimilanna.  Skora samtökin því á stjórnvöld að leita annarra leiða til loka fjárlagagatinu.

Hagsmunasamtök heimilanna hafa auglýst eftir því, að gerð sé hagspá fyrir heimilin í landinu.  Slík spá nái út árið 2012.  Hin miklu efnahagsumbrot undanfarinna ára hafa mikil áhrif á hag heimilanna, en þeim er ætlað af standa undir veltunni í þjóðfélaginu.  Hækkanir á höfuðstóli lána, breyting á kaupmætti, verðbólguþróun, skattakerfisbreytingar, atvinnustig, allt hefur þetta áhrif afkomu heimilanna, en samt er ekki talin þörf á því að gera hagspá fyrir heimilin eins og þau séu einhver afgangsstærð.  Hvetja samtökin stjórnvöld til að sjá til þess, að slík hagspá verði gerð hið bráðasta.  Hafa skal í huga, að samkvæmt tölum Seðlabanka Íslands og niðurstöðum skoðunarkönnunar samtakanna, eru tæp 20.000 heimili með greiðslubyrði yfir hættumörkum og önnur 44.000 rétt svo ná endum saman, m.a. með því að ganga á sparnað.  Hætt er við því, að hugsanlegar skattkerfisbreytingar stjórnvalda muni ýta verulegum fjölda heimila til viðbótar fram af hengifluginu.  Er það virkilega það sem við þurfum?

Lesa meira...
 

Frá Friðriki Ó Friðrikssyni formanni Hagsmunasamtaka heimilanna

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Kæru félagsmenn Hagsmunasamtaka heimilanna
Breyting hefur orðið á stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna vegna nýrrar atvinnu formanns.  Á stjórnarfundi Hagsmunasamtaka heimilanna 5.nóvember greindi Þórður B. Sigurðsson formaður stjórnar frá því að hann hefði tekið að sér nýja atvinnu, sem er aðstoðarmaður formanns Hreyfingarinnar.  Hagsmunasamtök heimilanna eru frjáls og óháð stjórnmalaflokkum.  Öll vinna stjórnarmanna er ólaunuð og því kann að koma upp sú staða við breytingar á atvinnu stjórnarmanna að hún samræmist ekki samþykktum samtakanna.  Í ljósi þessa vék Þórður úr stjórn samtakanna af eigin frumkvæði á fundinum í fullri sátt við stjórnarmenn.

Á fundinum var kosinn nýr formaður stjórnar, Friðrik Ó. Friðriksson gjaldkeri samtakanna.  Auk þess hefur Guðrún Dadda Ásmundardóttir tekið fast sæti í stjórn, sem fyrsti varamaður.  Breytingin tekur þegar gildi.

Lesa meira...
 

Yfirlýsing HH vegna skýrslu AGS (IMF)

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) í tengslum við fyrstu endurskoðun efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda og AGS koma m.a. fram upplýsingar um mat á virði þeirra lánasafna sem heimilin eru ábyrg fyrir.

Samkvæmt greiningu Hagsmunasamtaka heimilanna á ofangreindum upplýsingum er raunvirði umræddra lánasafna metið á 80% hjá Íbúðalánasjóði, á hálfvirði hjá sparisjóðum og öðrum lánafyrirtækjum, 56% hjá Íslandsbanka, 55% hjá Nýja Kaupþingi og 53% hjá Nýja Landsbankanum.  Að meðaltali gerir þetta 65%.

Út frá þessum upplýsingum draga samtökin þá ályktun að AGS telji mun meiri þörf fyrir niðurfærslu skulda heimilanna en áður hefur komið fram.  Það mætti jafnvel halda því fram að samkvæmt ofangreindum upplýsingum þurfi að færa skuldir heimilanna niður um 35% að meðaltali til að jafnvægi náist.

Lesa meira...
 

Umsögn Hagsmunasamtaka heimilanna um frumvarp til laga um aðgerðir fyrir einstaklinga, heimili

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Frumvarp til laga um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins
Lykil atriði í texta frumvarpsins, athugasemda og umsagnar fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytis

1. gr.
Markmið.

Markmið laga þessara er að hraða endurreisn íslensks efnahagslífs í kjölfar banka- og gjaldeyrishrunsins haustið 2008 og að jafnvægi komist á virði eigna og greiðslugetu annars vegar og fjárskuldbindinga einstaklinga, fyrirtækja og heimila hins vegar. Lögin kveða á um leiðir og viðmið til að ná því markmiði.

Í athugasemd:
Í 1. gr. frumvarpsins er að finna skýra stefnuyfirlýsingu frá Alþingi og stjórnvöldum um að kröfuhafar skuli leita samninga við skuldara um endurskipulagningu og leita sameiginlega lausna á fjárhagslegum vanda einstaklinga, heimila og fyrirtækja, með heildarhagsmuni að leiðarljósi.

Lesa meira...
 

Lögbann á innheimtu gengistryggðra lána

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Hagsmunasamtök heimilanna lýsa yfir eindregnum stuðningi við hugmynd talsmanns neytenda um að krefjast lögbanns á innheimtu gengistryggðra lána.  Samtökin hafa áður lýst yfir stuðningi við við tillögu talsmanns neytenda um gerðardómsleið og harma að hvorki stjórnvöld né fjármálastofnanir hafi kosið að láta á hana reyna.  Með skipun gerðardóms væri hægt að gera víðtæka sátt, með aðkomu allra hlutaðeignadi aðila, í þeirri deilu sem upp er komin af völdum forsendubrests í gengis- og verðtryggðum lánasamningum neytenda.

Það er mat Hagsmunasamtaka heimilanna að nýlega boðaðar aðgerðir stjórnvalda séu ófullnægjandi.  Í þeim felst að greiðslubyrði lána minnkar tímabundið en þó munu lántakendur að öllum líkindum bera tjón sitt óbætt þegar upp er staðið.  Samtökin lýsa yfir miklum vonbrigðum með að umrædd áform feli ekki í sér áætlun um afnám verðbreytingarákvæða í lánasamningum því með slíkri aðgerð væri hægt að koma í veg fyrir frekari eignaupptöku.
Lesa meira...
 

Krafa um aukinn frest á nauðungarsölu íbúða

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Fyrsta greiðsluverkfalli á vegum Hagsmunasamtaka heimilanna er nú lokið. Samtökin þakka öllum þeim fjölda sem tekið hefur þátt í verkfallinu eða stutt það á annan hátt.Verkfallið hefur fengið góðar undirtektir hjá almenningi en valdið verulegum titringi í bankakerfinu og hjá ríkisvaldinu.

Stjórnvöld hafa því miður ekki ljáð máls á að verða við kröfum samtakanna né efna til viðræðna um þær. Þess í stað hafa þau gert ráðstafanir til að minnka greiðslubyrði af lánum um tíma eftir nýrri vísitölu. Mismunurinn hleðst upp á höfuðstól lánanna og safnar okurvöxtum og verðbótum sem tryggja á að lántakendur greiði að fullu. Þannig stóreykst greiðslubyrðin þegar til lengdar lætur og framlengir skuldaþrældóm almennings.

Þann 1. nóvember n.k. lýkur þeim fresti sem veittur hefur verið varðandi nauðungarsölu íbúða. Hagsmunasamtök heimilanna krefjast þess að fresturinn verði framlengdur um 6 mánuði þannig að reynslan af aðgerðum ríkisstjórnarinnar komi í ljós áður. Það er mikið ábyrgðarleysi að selja eignir ofan af fjölda fólks áður en reynir á hvort ná má sátt í samfélaginu um viðunandi aðgerðir til varnar heimilunum.

Til að fylgja eftir þessari kröfu og ræða um boðun nýs greiðsluverkfalls boða Hagsmunasamtök heimilanna til opins fundar á næstunni.

15. október 2009
Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna

 

Ályktun Hagsmunasamtaka heimilanna vegna tillagna félagsmálaráðherra

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Hagsmunasamtök heimilanna telja að tillögur félagsmálaráðherra um aðgerðir til leiðréttingar greiðslubyrði og aðlögun skulda heimilanna vera ófullnægjandi. Samtökin virða þann vilja ráðherra að stuðla að tímabundinni almennri lækkun greiðslubyrði lána, en telja að ólíklegt sé að fyrirheit um mögulega leiðréttingu/afskrift í lok lánstímans standist. Tenging greiðslubyrði við greiðslujöfnunarvísitölu er lymskuleg aðferð til að tryggja að lánveitendur tapi engu. Það sem meira er, heildargreiðslubyrði mun aukast umtalsvert.

Samtökin sjá ekki að tillögur ráðherra uppfylli á nokkurn hátt, þau markmið sem sett eru fram í kynningarefni ráðherrans, svo sem að leiðrétta misgengi lána, launa, verðlags og gengis krónunnar, að eyða óvissu, að gæta jafnræðis, hófsemi og sanngirni og að stuðla að sátt í samfélaginu. Tillögurnar eru stríðsyfirlýsing, ekki sáttargerð.

Lesa meira...
 

Ákvörðun um greiðsluverkfall stendur óhögguð

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Í dag lagði félagsmálaráðherra fram tillögur að aðgerðum sem samkvæmt upplýsingum á vef Stjórnarráðsins ,,fela í sér umtalsverða leiðréttingu á greiðslubyrði af lánum og nýjar leiðir til að laga skuldir fólks að eignastöðu og greiðslugetu". 

Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna hefur lengi beðið eftir að fram komi tillögur frá stjórnvöldum og telja að framlagðar tillögur séu mikilvæg viðurkenning á baráttu þeirra fyrir hagsmunum heimilanna. 

Stjórnin mun nú leggjast yfir tillögurnar og fylgiefni og fyrst að þeirri yfirlegu lokinni munu samtökin koma með ítarleg viðbrögð við innihaldi þeirra.  Gera samtökin ráð fyrir að álit þeirra muni liggja fyrir fljótlega.  En við fyrstu sýn telja samtökin að tillögurnar séu ófullnægjandi. 

Ákvörðun um greiðsluverkfall stendur því óhögguð.

 


JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Bankareikningur samtakanna

Sparisjóður Suður Þingeyinga - Laugum.

Samtökin óska eftir frjálsum framlögum til styrktar starfinu.

Reikningurinn er: 1110-26-5202
kt. 520209-2120

SAMSTAÐA

Hópmálsókn

Umsagnir, category: "Ályktanir - samþykktir ofl."